30. mars 2008 | 16:47 | Flokkað sem

Árið sem ég fæddist, 1974, var Bók spurninganna eftir Pablo Neruda gefin út sem ljóðabók, ári eftir andlát skáldsins. Ég fæddist í Danmörku þar sem ég ólst upp fyrstu árin. Ég hef lengst af búið á Íslandi, en jafnframt hefur mér borið gæfa til þess að ferðast um Evrópu, Afríku og austurlöndin nær. Undanfarin ár hef ég nær eingöngu ferðast um Ísland, aðallega við göngur og útilegur. Ef til er sú kenning að í náttúrunni og á fjöllum sé hægt að öðlast eitthvað sem kalla mætti andlega reynslu þá er ég fylgjandi henni.
      Að þessu leyti, og á persónulegum grundvelli, er ég trúaður en ekki í skilningi trúarbragðanna. Ég sækist eftir þroska og hugarró, og reyni að vera samkvæmur því sem ég trúi.
      Ég nem heimspeki við Háskóla Íslands, er kvæntur og bý ásamt fjölskyldu minni í austurbæ Reykjavíkur.
     Tilvitnunin efst á þessari síðu er fengin úr þýðingu Þóris Jónssonar Hraundal úr áðurnefndum Spurningum Neruda, sem Bjartur gaf út árið 2004. En það er lestur sem ég mæli með fyrir hvern sem er.

Hlæjandi halastjarna e. Búa GuttesenMyndin á forsíðunni er eftir Búa Guttesen og nefnist Hlæjandi halastjarna.




Athugasemdir ekki leyfðar.