21. febrúar 2010 | 13:10 | Flokkað sem
dægurþras
Á mótum orkusviða
fæðist ljóðið.
Jafnvel þó við lifum á tímum sígrænnar hamingju leitumst við öll við að afmá fingraför fortíðar af sálinni. Þó hin harðsnúnu farartæki séu ekki alltaf tiltæk komumst við samt.
Vissulega ganga menn inn í ljóðheim Bjarna Bernharðs á eigin ábyrgð – en það væri óábyrgt að láta ekki verða af því.
Undir gullfjöllum er nítjánda bók Bjarna. Óhætt er að fullyrða að honum hefur í ljóðagerð sinni tekist að þróa einstaka rödd sem aldrei tekur mið af því hvað aðrir eru að gera. Bjarni fer sínar eigin leiðir í leit að þeim lífskrafti sem ljóð hans lýsa. |
|
 |
| Bókin fæst í helstu bókabúðum og hjá höfundi. Útgefandi er Ego útgáfan. |