30. ágúst 2009 | 12:28 | Flokkað sem dægurþras
Hvar er best að gefa út ljóðabók sem er tilbúin og gæti komið út núna í haust þess vegna, eða eftir áramót?
Ætti maður að sleikja forlögin og bíða eftir að bjallan hringi út? Ætti maður að gefa út sjálfur? Eða ætti maður að gefa út hjá höfundaforlagi eins og Nykri eða Nýhil?
Hvað er best að gera í stöðunni? Hvernig er hagsmunum manns sem ljóðskáld best borgið?
Ein athugasemd við “Hvar er best að gefa út?”
Arngrímur Vídalín
Gaf ekki JPV út þína síðustu bók? Ég myndi leita fyrir mér þar aftur áður en þú ferð til smærri forleggjara þar sem þú þarft sjálfur að leggja út fyrir útgáfunni.