18. apríl 2009 | 13:36 | Flokkað sem dægurþras
Þessi maður segir að ég hafi kallað bók hans, Síðustu ljóðabók Sjóns, auglýsingatrikk þegar ég sagði að umræða um hana væri það sennilega.
Bara svo það sé á hreinu.
Tilvitnunin birtist hér. En ég hef sumsé ekki lesið bókina og get því ekkert tjáð mig um hana.
8 athugasemdir við “Síðasta ljóðabók Sjóns”
Arngrímur Vídalín
Mér þætti vænt um að þú læsir hana og tjáðir þig svo um hana.
guttesen
Já, ég þarf að eignast hana.
Arngrímur Vídalín
Ég gæfi þér hana ef ég ætti. En hún fæst ennþá í Austurstræti fyrir lítið fé.
guttesen
Hún er ekki til á neinu bókasafni, eða hvað? Hún sést í öllu falli ekki í Gegni.
Maður hefði haldið að allar bækur sem gefnar eru út hér á landi lytu lögum um skylduskil.
Arngrímur Vídalín
Henni var skilað inn, þetta tekur bara tíma.
guttesen
Jamm. Prentsmiðjan á að sjá um það.
Lommi
Ég er enginn fuckings hippi og ég myndi aldrei gera peace merki.
kv.
lommi með hnefann á lofti
guttesen
En þekkirðu söngvarann í Oasis?