Spunaþræðir úr tilverunni

guttesen | 5. júní 2010 | Flokkað sem dægurþras

Spunaþræðir úr tilverunni
Út er komið fyrsta smásagnasafn Bjarna Bernharðs, Spunaþræðir úr tilverunni. Hér er ekki fjasað um smámuni. Eðli heimsins og óhjákvæmileg endalok mannkynsins, vináttu og von, geðveiki og glæp. Ekkert er einsog sýnist, hið hryllilega getur orðið sjálfsagt og hið sjálfsagða hryllilegt. Bjarni Bernharður á ekki tvífara og varla fjarskylda ættinga í bókmenntum heimsins. Hann er súrrealískur raunsæismaður með hrjúfan húmor, einstakt sjónarhorn og ríka frásagnargáfu. Það er dauður lesandi sem ekki hrífst, skelfist og kætist.

Bókin er 128 bls. Útgefandi er Ego útgáfan.

Engar athugasemdir »