Ný ljóðabók eftir Bjarna Bernharð
Ný ljóðabók eftir Bjarna Bernharð: Blóm í byssukjafta græðginnar

Í hringrás
tómleika
flöktir ljósið
um verund
hverfull
sannleikur
spannar
sviðið
vegferð
í tímaleysi
markar
upphafið.
Í þessari bók má finna óræð myndljóð í knöppu formi, önnur opin og glaðleg, fáein hvassyrtari, en öll eru þau fáguð og bera jafnframt skýr einkenni höfundarins. Það vald sem Bjarni Bernharður hefur hér náð á markvissum, litríkum einfaldleika, skipar honum í röð merkari ljóðskálda samtímans.
Enginn skyldi reyna að útskýra galdur ljóðsins. En listin gerir okkur oft ljóst hið nýja og óvænta í því gamalkunna sem virtist útrætt og afgreitt – og að í hinu persónulega búa sammannleg verðmæti sem undirstrika hvað máli skiptir í lífinu – og hvers virði það er. Fátt er okkur mikilvægara.
Bókin fæst í bókaverslunum. Útgefandi er Ego útgáfan.