Handbók perrans

guttesen | 3. maí 2009 | Flokkað sem dægurþras

Ég skrapp út á videoleigu í gærkvöldi til að leiga Gretti handa yngri syninum. Við afgreiðsluborðið dettur mér allt í einu í hug að spyrja um rómaða mynd slóvenska heimspekingsins Žižek, þar sem hann sálgreinir þekktar persónur úr kvikmyndasögunni, og segi við ungu dömuna: „Eigið þið A Pervert’s Guide To Cinema?“
     Stúlkan slær inn orðið ‘Pervert’ í tölvuna og segir því næst stutt í spuna: „Hún er allavega ekki til hér!“ – henni virðist ekki vera skemmt.
     Sem ég labba út með Gretti og bland í poka átta ég mig á því að hún hefur auðvitað haldið að ég væri að spyrja um klámmynd til að hafa með ásamt teiknimyndinni. Handbók perrans. Get ég gert að því að hún skuli ekki vera betur að sér í kvikmyndasögunni en þetta?

Engar athugasemdir »