Stjórnarskrá Íslands

guttesen | 19. febrúar 2009 | Flokkað sem dægurþras

Ástæða er til að óttast að bakslag sé komið í áform stjórnarflokkanna um að efna til stjórnlagaþings um nýja stjórnarskrá.

Verði ekki boðað til stjórnlagaþings nú eru líkur til þess að tækifærið glatist og komi ekki á aftur fyrr en manngerðar hamfarir hafi á ný dunið á þjóðinni.

Undirskriftirnar verða afhentar fulltrúum stjórnvalda í byrjun mars næstkomandi, þá hefur alþingi enn tíma til að samþykja frumvarp um stjórnlagaþing. Við höfum þann tíma til að tryggja að stjórnlagaþing verði að veruleika.

Nú er tími aðgerða.

Hvað getum við gert?

  1. Safna fleiri undirskriftum.
    Sendu póst á alla sem þú þekkir með hvatningu um að skrifa undir.

  2. Hafðu samband við þingmenn og spurðu hvort þeir muni styðja eða beita sér fyrir lagasetningu um stjórnlagaþing.
    Hér er listi yfir þingmenn, netföng og símanúmer.

  3. Hengdu upp hvatningu á vinnustað, skóla eða annars staðar.

  4. Ef þig langar að taka þátt í baráttunni eða hefur hugmyndir hafðu þá samband.

Engar athugasemdir »


Þorsti

guttesen | 13. febrúar 2009 | Flokkað sem dægurþras

Þegar ég horfi á Idol verð ég Coke-þyrstur …

Engar athugasemdir »


Unglingurinn í riddarasögunni

guttesen | 6. febrúar 2009 | Flokkað sem dægurþras

Eftirfarandi tilvitnun er úr riddarasögu sem mér skilst að hafi verið skrifuð seint á 12. öld, og þýdd á íslensku á fyrri hluta 13. aldar:

   Þá sá eg koma ríðanda riddara. Hann gerði mikið hark og háreysti af sér. Og sem eg leit hann einsaman, þá tók eg hest minn og vopn, og sé eg upp á hann. En hinn þegar sem reiður og illgjarn hleypti sem hann mátti skjótast. Og svo framt sem eg sá hann, þá heitaðist hann við mig og mælti: „Gaur,“ kvað hann, „mikla svívirðing hefir þú mér gert og skömm. Þú skyldir hafa stefnt mér til einvígis, ef þú hefðir sakir að gefa mér, ella biðja mig bæta, ef eg hefða við þig misgert, en þú gerðir mér ófrið. Vit fyrir víst, gaur, ef eg má, að þú skalt hljóta háðulega hlut þungra vandræða …“

- Úr „Ívents sögu Artúskappa“, Riddarasögur 2. bindi, Íslendingasagna-útgáfan, Haukadalsútgáfan, 1954, bls. 10-11.

Engar athugasemdir »