Breytingar

guttesen | 30. október 2008 | Flokkað sem dægurþras

Vert að benda á vefsíðuna kjósa.is

Þar getur fólk skráð sig á undirskriftalista sem vill alþingiskosningar sem fyrst.
Um að gera að skrá sig og benda öðrum á síðuna (nema maður vilji ekki stjórnina frá).

Engar athugasemdir »


Ljóð úr Glæpaljóðum á albönsku

guttesen | 13. október 2008 | Flokkað sem dægurþras

Skáldið Kristian Guttesen verður fulltrúi Íslands á tólftu „Ditet ë naimit“ skáldahátíðinni í Makedóníu, dagana 23. – 26. október næst-komandi.

Á hátíðinni verða skáld frá Evrópu, Afríku og Kanada. Önnur norræn skáld sem taka þátt eru Anni Sumari frá Finnlandi og Trine Andersen frá Danmörku. Ráðgert er að Kristian taki þátt í þremur upplestrum.

Samhliða hátíðinni kemur út veigamikið þýðingarit með albönskum þýðingum á ljóðum þátttakenda, og verða þar á meðal ljóð úr Glæpaljóðum Kristians sem JPV útgáfa gaf út á síðasta ári.

http://www.forlagid.is/Forsida/Article.aspx?id=4083

http://www.bokmenntir.is/displayer.asp?cat_id=5&module_id=220&element_id=2147

Engar athugasemdir »


64 dollara spurningin

guttesen | 10. október 2008 | Flokkað sem dægurþras

Veit einhver um eftirpartí?

Engar athugasemdir »


Brunaliðið

guttesen | 9. október 2008 | Flokkað sem dægurþras

Í Kastljósviðtali um daginn sagði seðlabankastjóri eitthvað á þá leið að líkja mætti hruni bankakerfisins við íkveikju götustráka sem höfðu hagað sér eins og brennuvargar á opnu leiksvæði sem hann hefði að vísu komið á.

Ef það er rétt greining og bruninn er brennuvörgunum að kenna, af hverju voru engar brunavarnir?

Hvers vegna var ekkert brunaeftirlit?

Engar athugasemdir »


Från saga til skräck historia

guttesen | 8. október 2008 | Flokkað sem dægurþras

Fékk þetta skeyti á ljóðlistarpóstlista sem nýverið var stofnað til:

Ljóðskáldið Kristian Guttesen tjáir sig um kreppuna við Dagens Nyheter.

“Kristian Guttesen beskriver sin familj som en genomsnittlig isländsk familj. Han har märkt av krisen på att maten blivit dyrare, liksom huslånet. Men samtidigt rycker han på axlarna – han tycks inte vara lika orolig som sin fru.

- Vi kan anpassa oss, vi klarar oss, säger han.”

http://www.dn.se/DNet/jsp/polopoly.jsp?d=3130&a=837503

- – -

Blaðamaðurinn sem tók viðtalið, Dan Lucas, stoppaði okkur hjónin fyrir utan Bónus á Laugavegi í gær. Ég hef séð viðlíka erlenda fréttamenn á ferli síðustu daga. Allir að leita að Íslendingi sem er tilbúinn að bölva kreppunni og ákalla guð sinn. Afstaða mín er sú að þótt ástandið sé slæmt hér á Íslandi eins og er, þá er það líka svo annars staðar í heiminum. Kreppa eða engin kreppa. En sumir sáu þetta nú fyrir. Verst að þeir höfðu engin völd.

Engar athugasemdir »


Eggjagjafar óskast

guttesen | 8. október 2008 | Flokkað sem dægurþras

Eggjagjafar óskast

Engar athugasemdir »


Stjórnspeki

guttesen | 6. október 2008 | Flokkað sem dægurþras

Ef þolinmæði er dyggð í skák,

hvað er dyggð í fjármálakreppu?

Stjórnmálamenn snúa sér að því að veita áfallahjálp.

Engar athugasemdir »


Pítsuna eða lífið?

guttesen | 4. október 2008 | Flokkað sem dægurþras

Í dag komst ég að raun um að í skák er þolinmæði dyggð. Það ætla ég að reyna að muna.

Mér sýnist að ljóðið mitt í TMM 2007 · 4 hafi verið stælt í Lesbókinni í morgun. En kannski er það bara oftúlkun.

Gott og vel. Nú er „grasekkils vika“ á enda. Og það er orðið ljóst að börnin á heimilinu borða ekki matinn hans pabba. Ég neita að trúa að það hafi eitthvað með grænmetisfæði eða matseldina að gera.

Engar athugasemdir »


Hinn sálræni klukkutími

guttesen | 2. október 2008 | Flokkað sem dægurþras

Margir kannast við hið svokallaða akademíska korter.

Í dag heyrði ég nefndan hinn sálræna klukkutíma.

Ég var staddur í Odda.

Engar athugasemdir »