Nóbelsverðlaunin í handbolta

guttesen | 25. ágúst 2008 | Flokkað sem dægurþras

„… Þegar við eignuðumst okkar eina Nóbelsverðlaunahafa, Halldór Laxness, þá tók þjóðin á móti honum við höfnina með pompi og prakt og ég held það sama eigi við núna. Enda skynja ég og finn fyrir því að þjóðin okkar vill fá að berja strákana okkar augum, og hylla þá.“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, íþróttamálaráðherra, í kvöldfréttum Rúv um móttökuna sem efnt verður til við komu hins íslenska karla-landsliðs í handbolta næsta miðvikudag, þegar leikmenn liðsins verða sæmdir stórriddara- og riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu eftir glæstan árangur á Ólympíuleikunum í Kína.

Engar athugasemdir »


Að fara of geyst

guttesen | 23. ágúst 2008 | Flokkað sem dægurþras

Ég hljóp í Reykjavíkurmaraþoninu í dag. Lét mér nægja tíu kílómetrana og náði ágætum tíma. En eitthvað segir mér að ég hafi farið of geyst.

Engar athugasemdir »


Neysluhyggja

guttesen | 22. ágúst 2008 | Flokkað sem dægurþras

Sumar auglýsingar eru svo flottar að fólk veit ekki einu sinni hvað er verið að auglýsa.

Engar athugasemdir »


Raunsæi

guttesen | 20. ágúst 2008 | Flokkað sem dægurþras

Íslenskur handboltalandsleikur.

Það er alltaf slæmur kafli.

Engar athugasemdir »


Raddir fyrir Tíbet

guttesen | 19. ágúst 2008 | Flokkað sem dægurþras

Raddir fyrir Tíbet

Næstkomandi sunnudag, þann 24. ágúst  klukkan 20:00, standa vinir Tíbets fyrir góðagerðartónleikum í Salnum í Kópavogi til að styrkja flóttamannamiðstöð sem rekin er í Dharamsala.

KK, Jónas Sig, Svavar Knútur, Páll Óskar & Monica, og Jón Tryggvi munu ljá málefninu rödd sína sem og Ögmundur Jónason, Birgitta Jónsdóttir og Tsewang Namgyal munu halda stutt erindi um Tíbet. Harpa Rut Harðardóttir mun sýna ljósmyndir sem hún tók á ferðalagi sínu nýverið í Tíbet í anddyri Salarins og verða myndirnar til sölu og mun andvirði þeirra renna í styrktarsjóðinn.

Í Dharamsala á Indlandi er rekin flóttamannamiðstöð sem tekur við um 3000 flóttamönnum sem flýja Tíbet ár hvert. Mikil aukning hefur verið á því að fólk flýji frá landinu undanfarin ár. Flóttinn tekur um fimm vikur yfir hæstu fjallaskörð í heimi og leggur fólk sig í lífshættu til að öðlast frelsi til að stunda sína menningu og fá tækifæri til að rækta tungumálið sitt. Þriðjungur allra flóttamanna eru börn sem leggja í 90% tilfella ein í þessa för til frelsis. Þau börn sem lifa af flóttann missa oftast tær og putta út af frostbitum.

Allur ágóði af menningarveislunni Raddir fyrir Tíbet rennur til flóttamannamiðstöðvarinnar og gefa allir listamennirnir vinnu sína.

Miðar fást hjá Salnum og á midi.is, en aðgangseyrir er 2000 krónur.

Engar athugasemdir »


Bjarni Bernharður með sýningu á Mokka

guttesen | 16. ágúst 2008 | Flokkað sem dægurþras

  Bjarni Bernharður með sýningu á Mokka

Bjarni Bernharður opnar málverkasýningu í vikunni á Kaffi Mokka á Skólavörðustíg.

Á sýningunni eru 20 olíumálverk sem eru afrakstur yfirstandandi árs. Á um 20 ára ferli sínum hefur Bjarni haldið fjölmargar einkasýningar og vaxið jafnt og þétt sem listamaður og þróað með sér sérstæðan og vandaðan stíl. Bjarni er landskunnur fyrir litríkar og efnismiklar myndir sínar. Hann hefur einnig fengist við skáldskap og situr gjarnan við sýninguna og býður gestum og gangandi að blaða í bækur sínar, ef þeir vilja, eða spjalla um verkin.

Sýningin stendur yfir fram á haust.

Engar athugasemdir »


Skákklúbbur Soffíu stofnaður í kvöld

guttesen | 12. ágúst 2008 | Flokkað sem dægurþras

Í kvöld ætlum við nokkrir meðlimir Soffíu, félags heimspekinema, að gangsetja skákklúbb Soffíu, á Grandrokk kl. 21:00.

Klúbburinn er opinn öllum heimspekinemun sem og áhugamönnum um heimspeki. Skákkunnátta er ekki nauðsynleg. Fyrst og fremst ætlum við að rækta félagslífið og eiga náðuga kvöldstund saman.

Áætlað er að æfingar skákfélagsins fari fram reglulega í vetur og ef áhugi er fyrir hendi skráum við okkur til leiks á Íslandsmót Skákfélaga!

Fyrir þá sem eru í keppnisskapi verða vegleg bókaverðlaun á hverri æfingu, en það er ekki skilyrði að tefla til þess að mæta og njóta samverunnar.

Staðfestið endilega mætingu á FaceBook (engin krafa þó) og látið boð ganga.

Engar athugasemdir »


10 staðreyndir um Tíbet

guttesen | 7. ágúst 2008 | Flokkað sem dægurþras

Eyðilögð veggmynd
  1. Innrásin í Tíbet hófst 1949. Hernám Kína á Tíbet hefur kostað yfir 1.000.000 Tíbeta lífið, meira en 6.000 klaustur og hof hafa verið eyðilögð og þúsundir Tíbeta hafa verið fangelsaðir og pyntaðir.
     
  2. Dalai Lama, pólitískur og trúarlegur leiðtogi landsins, flúði Tíbet árið 1959 til Dharamsala í Indlandi, og í kjölfarið fylgdu í kringum 100.000 Tíbetar og stofnuð var ríkisstjórn Tíbets í útlegð.  Árið 1989 voru Dalai lama veitt friðarverðlaun Nóbels fyrir að víkja aldrei frá friðsamlegri stefnu sinni í frelsisbaráttu Tíbets.
     
  3. Fyrir hernámið var Tíbet einveldi með fullgildri ríkisstjórn, með sinn eigin gjaldeyri, póstkerfi, tungumál, lagakerfi og menningu. Fyrir árið 1950, skrifaði Tíbet undir alþjóðlega samninga á sama hátt og önnur lönd heimsins. Ríkisstjórn Kína heldur því fram að Tíbet hafi alltaf verið hluti af Kína, en þrátt fyrir það ber hernámið á Tíbet einkenni ofbeldisfullrar nýlendustefnu, á borð við þær sem Kína hefur oft sakað aðrar stórþjóðir um að framfylgja.
     
  4. Það sem kínverska ríkisstjórnin kallar „Sjálfstjórnarhéraðið Tíbet“, er ekki Tíbet og enn síður er sjálfstjórn þar. Það landsvæði sem Tíbetar álíta vera Tíbet, skipti ríkisstjórn Kína niður í ólík héröð og sýslur og er “Sjálfsstjórnarhéraðið Tíbet” eitt þeirra og nær aðeins yfir mið- og austurhluta Tíbets.
     
  5. Grundvallar mannréttindi, svo sem málfrelsi, trúarfrelsi og samkomufrelsi eru verulega skert og handahófskenndar órökstuddar handtökur viðgangast.  Í dag eru hundruðir pólitískra fanga í Tíbet og algengt er að þeir þurfi sífellt að þola pyntingar.
     
  6. Ríkisstjórn Kína hefur í auknu mæli hvatt Han Kínverja (sem eru fjölmennastir í landinu) til að flytjast búferlum til Tíbets, og geta því fylgt bæði hærri laun og ýmis hlunnindi. Þessi stefna hefur ógnað mjög afkomu Tíbeta. Tíbetar eru á hraðri leið með að verða minnihlutahópur í „Sjálfsstjórnarhéraðinu Tíbet”. Árlega flýja að auki þúsundir Tíbeta úr landi með því að fara fótgangandi hina lífshættulegu leið yfir Himalayafjallgarðinn til að leita frelsis.
     
  7. Hið sögulega landsvæði Tíbets var afar víðfeðmt, með landsvæði sem gróflega jafnast á við vestur-Evrópu að stærð. Í Tíbet eiga fimm af stærstu fljótum Asíu upptök sín, sem sjá í kringum 2 milljörðum manns fyrir vatni.  Viðkvæmt lífríki Tíbets er í hættu vegna yfirgripsmikillar málmgrýtisvinnslu úr yfirborðsnámum í eigu Kínverja, vegna kjarnorkutilrauna þeirra í landi og gífurlegs skógarhöggs.
     
  8. Ríkisstjórn Kína heldur því fram að tekist hafi að „þróa“ Tíbet, en „þróunin“ hefur að mestu gagnast aðfluttum Kínverjum, ekki Tíbetum. Mennta- og heilbrigðiskerfin hafa verið vanrækt en milljónum dollara hefur verið varið í uppbyggingu á samgöngum, byggingum og orkuverum sem þjónusta mikilfenglega hervæðingu landsins og hafa gert Tíbet að lögregluríki.
     
  9. Ríkisstjórn Kína hefur lagt mikla áherslu á að selja erlendum fjárfestum aðgang að auðlindum Tíbets, og í því skyni hert stjórnun sína á svæðinu. Hefur stjórnin sett upp herferðir á borð við þá sem þeir kalla „Go West“ til að laða að erlenda fjárfesta. Erlendar fjárfestingar á kínverskum fyrirtækum og þau verkefni sem arðræna Tíbet verða aðeins til þess að réttlæta nýlendustefnuna í Tíbet.
     
  10. Sameinuðu þjóðirnar og alþjóðasamfélagið hafa gert afar lítið til þess að sporna við ólöglegu hernámi Kínverja á Tíbet. Kínverskur markaður er gífurlega stór og býr yfir ódýru vinnuafli, og samstarfs- og viðskiptaaðilar hafa það mikil áhrif að stjórnsýsluaðilar flestra landa heimsins eru tregir til að leggja nokkuð markvert til málanna. Síðan flest vesturlönd tóku upp svokallað „uppbyggilegt samband“ við Kína á tíunda áratugnum, hefur ástandið í mannréttindamálum Tíbeta aðeins versnað.
     

Nánari upplýsingar
tibet.blog.is – tibet.com
tibet.net – phayul.com – tchd.org
info@tibet.is

Engar athugasemdir »


Kaupþing styrkir ekki lengur skólakerfið

guttesen | 5. ágúst 2008 | Flokkað sem dægurþras

Í fyrra styrkti Kaupþing banki með myndarlegum hætti alla skóla landsins með því að greiða aðgang fyrir öll skólanet að Vefbókum.is. Slík aðgerð, sem vafalaust er kostnaðarsöm, er fyrirtaks auglýsing og styrkir ímynd bankans. Nú hefur Kaupþing ákveðið að draga saman seglin og styrkja ekki lengur skólakerfið með þessum hætti. Það er spurning hvort að slík ákvörðun sé að sama skapi ekki „óauglýsing“?

Þó verður að segjast að ákvörðunin er sérlega einkennileg í ljósi þess að bankinn skilaði miklum hagnaði samkvæmt síðasta ársfjórðungs-uppgjöri, þó hann hafi vitaskuld dregist saman frá því í fyrra.
     Eftir stendur spurningin: hvort er dýrkeyptara, góð auglýsing eða óauglýsing?

Engar athugasemdir »