guttesen | 31. júlí 2008 | Flokkað sem
dægurþras

Við sem lesum DV, en leiðum almennan fréttaflutning hjá okkur og flettum að öllu jöfnu upp á dagskrá sjónvarpsins yfir morgunkaffinu, áttum í erfiðleikum með að staðsetja okkur í tíma og rúmi í dag.
Við blasti dagsetningin: XXXdagur XX, XXX 200X
og maður spurði sig, hvaða dagur er í dag?
Flest okkar gerðum við þó gott úr þeirri óvissu, slökktum á sjónvarpinu og fórum út úr húsi.
guttesen | 29. júlí 2008 | Flokkað sem
dægurþras
Nýjasta bók Bjarna Bernharðs, Kaleikur, fæst á margan hátt við spurninguna um hvað það sé að vera maður. Hún fylgir sögumanni frá fæðingarárum hans í íslensku sveitarþorpi allt til hann eftir svaðilfarir og ógöngur á fullorðinsárum, þar sem hann hefur reynt meira en margur, reynir að kryfja spurninguna til mergjar. Við henni er ef til vill ekkert einfalt svar, en sú mynd sem dregin er upp í frásögn Bjarna er raunsönn og vægðarlaus í senn.
Stíll Bjarna svipar til frásagnartækni Íslendinga sagna og skilur lesandann eftir í rás viðburða í veruleika sem eltir hann eins og hundur í sólskini.
Bókin er 108 síður og fæst í bókaverslunum. Útgefandi er Egó útgáfan.
Leiðbeinandi verð er kr. 2.490,-
guttesen | 19. júlí 2008 | Flokkað sem
dægurþras
„Einhver hafði rekið sverð í gegnum hjartað í honum. Það var ekki stolið af honum peningum og reyndar engu nema …
– Nema?
– … nema spilinu með myndinni af nunnunni sem síðar fannst á munkinum. Ég sit eftir með þá afar óþægilegu tilfinningu að morð-ingjanum sé umhugað um að ég viti af glæpnum hans.“
Úr hvaða bók?