Top Gear í bleiku…
„Það er ekki oft sem ég pakka inn Top Gear í bleiku!“
Afgreiðslumaðurinn var hress í bragði og vandaði sig meðan hann pakkaði inn gjöfinni. Ég gretti mig og hugsaði með mér að miðað við fráganginn hafði hann sennilega aldrei pakkað neinu inn áður. Hvers konar athugasemd var þetta annars? Í pakkanum var líka metsölubók eftir Árna Þórarinsson, en hann þurfti sem sagt að einblína á túrbó testosterone DVD-diskana (sem ég hafði valið) í bleiku umbúðunum (sem ég hafði beðið um). Hann var áreiðanlega mikill spéfugl og sá sig knúinn til að benda á fáránleika, en jafnframt aulafyndni aðstæðnanna. Svona maður sem sæi húmorinn í öllu. Þakka þér fyrir karlinn minn, hugsaði ég beiskur. Það var eiginlega of erfitt að hugsa upp nógu sniðugt andsvar, og varla þess virði. Af hverju hafði ég beðið þennan síðhærða og skeggjaða Starwars Jedi að pakka inn gjöfinni fyrir mig? Ég hugsaði í skyndi um hvað væri nægilega töff svar fyrir hann, opnaði munninn og heyrði sjálfan mig segja: „Já, það er alveg furðulegt hvað margar konur hafa áhuga á þessum þáttum!“
Með þeim orðum hafði ég líklega sannfært hann endanlega um að ég væri að kaupa þetta fyrir sjálfan mig. Ég innti greiðsluna af hendi, hrifsaði pakkann af honum og fór.