Laugardagsgátan

guttesen | 26. apríl 2008 | Flokkað sem dægurþras

Um haustið fór ég á upplestur í Menntunarfræðistofnun Lundúnar-háskóla í tilefni af útkomu ljóðasafns sem ritstjórarnir tveir lásu upp úr og árituðu við það tækifæri. Ég hafði dvalið um tvö ár í Wales, þetta var dagsferð og því ærið löng lestarferð til þess að eignast eina bók. Í dag er hún metin á um 25x meira en ég greiddi fyrir hana á sínum tíma.

Hvaða bók og hverjir lásu?

Engar athugasemdir »


Lýst eftir umsóknum

guttesen | 26. apríl 2008 | Flokkað sem dægurþras

Opið fyrir umsóknir um sumarstörf hjá Reykjavíkurborg.

Opið fyrir umsóknir.

Opið fyrir umsóknir í Kennaraháskóla Íslands.

Opið fyrir umsóknir í HR. Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir skólaárið 2007-2008.

Íþróttaakademían – ÍAK einkaþjálfaranám OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR.

Opið fyrir umsóknir. RIFF 2006 hefur opnað fyrir umsóknir frá kvikmyndagerðarmönnum sem vilja sýna verk sín á hátíðinni í haust.

Vinnumiðlun ungs fólks opnar fyrir umsóknir vegna sumarstarfa hjá Reykjavíkurborg mánudaginn 19. febrúar.

Opið fyrir umsóknir í tvo sjóði.

Lýst eftir umsóknum … Einnig er opið fyrir umsóknir í þjálfunarnet.

Engar athugasemdir »


Ég hef enga kínverja sprengt…

guttesen | 12. apríl 2008 | Flokkað sem dægurþras

Stop Killing Buddhist Munks | Dead.is

Á leiðinni úr sundi í morgun heyrði ég Baggalút minnast á frelsisbaráttu Tíbeta og hina árlegu sprengigleði Íslendinga, í fréttaauka dagsins.
     Ég hef um árabil látið lítil inniblys duga á gamlárskvöldi, enda enga ástæðu séð til þess að sprengja kínverja í lofti upp. Væri það ekki þjóðráð ef við tækjum okkur öll saman um að sprengja enga kínverja, hvorki á gamlárskvöldi né á þrettándanum (það er vel hægt að styrkja björgunarsveitirnar fyrir því), og létum þess í stað fé af hendi rakna til handa baráttu Tíbeta? Það sama gætu íslenskir ráðamenn gert í stað þess að sækja opnunarhátíð Ólympíuleikanna í ár.

Engar athugasemdir »


Laugardagsgátan

guttesen | 12. apríl 2008 | Flokkað sem dægurþras

Ég lá í heitum potti og þóttist vera að tala við félaga minn á meðan tveir karlar voru að tala um appelsínuhúð.

Hver er myndin?

Engar athugasemdir »


Kínverski dýrahringurinn

guttesen | 12. apríl 2008 | Flokkað sem dægurþras

Ég sit hjá Torfa í Hárhorninu við Hlemmtorg, en strákarnir eru báðir að fá sér kiwi klippingu hjá honum. Það mun vera sumarklippingin í ár. Sem ég bíð, sit ég hér og blaða í handriti að óútgefinni bók Torfa um kínverska dýrahringsspeki. Þar segir frá kínversku árunum sem öll dýrin eru kennd við, auk fróðleiks um hvern dýraflokk. Sjálfur er ég fæddur á grænu ári tígursins, en yngri strákurinn er svartur hestur og sá eldri rauðfjólublár uxi.

Þegar ég fletti handritinu sé ég jafnframt að ég er í Viðarmerkinu, og kemur fram að í læknisfræði Taóismans séu líkamshlutar viðar lifur og gallblaðra. Það vill segja: Að drekka alkóhól er sem eitur fyrir viðar-merkið og veldur ójafnvægi. Þá veit ég það. Staðfest af sjálfu tilveru-lögmálinu. En þá segir einnig: Gefur af sér góðan þokka og unir sér vel við skriftir, lestur og að læra á friðsömum stað.

Já. Það var og…

Engar athugasemdir »