Undir gullfjöllum
Skáldfákur á heljarslóð
Hinn kómíski þáttur
er beittasta vopn mitt í baráttunni.
Það felst sannleikskorn
í túlkun þinni
þegar þú dregur upp hina kynlegu
ímynd mína
sem kallast á við raunsannan
hversdagsleikann
þú skyggnist inn í sálu mína
myndin
endurspeglar í senn
háska og sanna auðmýkt.
Þótt öfgarnar tröllríði
þegar þú teiknar rauðu sólgleraugun
álasa ég þér ekki.
Gleraugun eru hinn upphafni sannleikur.
Og hvað er lífið
annað en absúrd persóna með rauð
sólgleraugu?
Til samræmis við tóninn í bókinni
er þessi mynd
einmitt
það sem vantaði.

Kviknaði í brjósti
vonarneisti
ljósblik hugans
en skjótt brann
vafurloginn
í brimróti tímans
brotnaði fleyið
skáldfákur
fetaði heljarslóð.
Ferill Bjarna Bernharðs spannar hálfan fjórða áratug. Samhliða ritstörfum hefur hann fengist við myndlist við góðan orðstír. Á þessum tíma hafa ljóð hans og efnistök tekið töluverðum breytingum og má greina í þeim leitandi einstakling sem tekist hefur á við lífið af hispursleysi og grósku.
Til er sú heimspeki sem túlkar líf manns sem átök hans við að sætta hið appolóníska í tilverunni sem birtist í reglu, kyrrstæðri fegurð og skýrum mörkum, við hið díónýsíska sem birtist í ofsa, öfgum og upplausn þessara marka. Þá baráttu hefur Bjarni háð á afkastamiklum ferli á heljarslóð, í lífi sínu og ljóðum.
Í þessu ljóðaúrvali Bjarna Bernharðs birtist meginhluti ljóðanna í endurgerð. Bókin fæst í bókabúðum.
Hvar er best að gefa út?
Hvar er best að gefa út ljóðabók sem er tilbúin og gæti komið út núna í haust þess vegna, eða eftir áramót?
Ætti maður að sleikja forlögin og bíða eftir að bjallan hringi út? Ætti maður að gefa út sjálfur? Eða ætti maður að gefa út hjá höfundaforlagi eins og Nykri eða Nýhil?
Hvað er best að gera í stöðunni? Hvernig er hagsmunum manns sem ljóðskáld best borgið?
Ný ljóðabók eftir Bjarna Bernharð
Ný ljóðabók eftir Bjarna Bernharð: Blóm í byssukjafta græðginnar

Í hringrás
tómleika
flöktir ljósið
um verund
hverfull
sannleikur
spannar
sviðið
vegferð
í tímaleysi
markar
upphafið.
Í þessari bók má finna óræð myndljóð í knöppu formi, önnur opin og glaðleg, fáein hvassyrtari, en öll eru þau fáguð og bera jafnframt skýr einkenni höfundarins. Það vald sem Bjarni Bernharður hefur hér náð á markvissum, litríkum einfaldleika, skipar honum í röð merkari ljóðskálda samtímans.
Enginn skyldi reyna að útskýra galdur ljóðsins. En listin gerir okkur oft ljóst hið nýja og óvænta í því gamalkunna sem virtist útrætt og afgreitt – og að í hinu persónulega búa sammannleg verðmæti sem undirstrika hvað máli skiptir í lífinu – og hvers virði það er. Fátt er okkur mikilvægara.
Bókin fæst í bókaverslunum. Útgefandi er Ego útgáfan.
Handbók perrans
Ég skrapp út á videoleigu í gærkvöldi til að leiga Gretti handa yngri syninum. Við afgreiðsluborðið dettur mér allt í einu í hug að spyrja um rómaða mynd slóvenska heimspekingsins Žižek, þar sem hann sálgreinir þekktar persónur úr kvikmyndasögunni, og segi við ungu dömuna: „Eigið þið A Pervert’s Guide To Cinema?“
Stúlkan slær inn orðið ‘Pervert’ í tölvuna og segir því næst stutt í spuna: „Hún er allavega ekki til hér!“ – henni virðist ekki vera skemmt.
Sem ég labba út með Gretti og bland í poka átta ég mig á því að hún hefur auðvitað haldið að ég væri að spyrja um klámmynd til að hafa með ásamt teiknimyndinni. Handbók perrans. Get ég gert að því að hún skuli ekki vera betur að sér í kvikmyndasögunni en þetta?
Stjórnarmyndun

Spurt er: Hvaða flokkar þessarar samsvörunar eru líklegir til að mynda stjórn?
Síðasta ljóðabók Sjóns
Bara svo það sé á hreinu.
Tilvitnunin birtist hér. En ég hef sumsé ekki lesið bókina og get því ekkert tjáð mig um hana.
Að vera leiksoppur
Björn Bjarnason, þingmaður og fyrrum ráðherra, segir Stjálfstæðisflokkinn leiksopp í ofurstyrkjamálinu svokallaða.
Veit Björn Bjarnason hvað það þýðir að vera leiksoppur?
Um hallarbyltingu Nýhils
Persóna úr skáldsögunni Konur hringdi í mig.
Hún þvoði mig tandurhreinan, virkilega hreinan.
Sittúasjónin er revúlúsjóner! sagði hún.

