Undir gullfjöllum

guttesen | 21. febrúar 2010 | Flokkað sem dægurþras

Á mótum orkusviða
fæðist ljóðið.


Jafnvel þó við lifum á tímum sígrænnar hamingju leitumst við öll við að afmá fingraför fortíðar af sálinni. Þó hin harðsnúnu farartæki séu ekki alltaf tiltæk komumst við samt.

Vissulega ganga menn inn í ljóðheim Bjarna Bernharðs á eigin ábyrgð – en það væri óábyrgt að láta ekki verða af því.

Undir gullfjöllum er nítjánda bók Bjarna. Óhætt er að fullyrða að honum hefur í ljóðagerð sinni tekist að þróa einstaka rödd sem aldrei tekur mið af því hvað aðrir eru að gera. Bjarni fer sínar eigin leiðir í leit að þeim lífskrafti sem ljóð hans lýsa.

Bókin fæst í helstu bókabúðum og hjá höfundi. Útgefandi er Ego útgáfan.

Engar athugasemdir »


Skáldfákur á heljarslóð

guttesen | 3. september 2009 | Flokkað sem dægurþras

Hinn kómíski þáttur
er beittasta vopn mitt í baráttunni.

Það felst sannleikskorn
í túlkun þinni
þegar þú dregur upp hina kynlegu
ímynd mína
sem kallast á við raunsannan
hversdagsleikann

þú skyggnist inn í sálu mína

myndin
endurspeglar í senn
háska og sanna auðmýkt.

Þótt öfgarnar tröllríði
þegar þú teiknar rauðu sólgleraugun
álasa ég þér ekki.

Gleraugun eru hinn upphafni sannleikur.

Og hvað er lífið
annað en absúrd persóna með rauð
sólgleraugu?

Til samræmis við tóninn í bókinni
er þessi mynd
einmitt
það sem vantaði.

bbernhardur

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Kviknaði í brjósti
vonarneisti

ljósblik hugans

en skjótt brann 
vafurloginn

í brimróti tímans
brotnaði fleyið

skáldfákur 
fetaði heljarslóð.

skaldfakurFerill Bjarna Bernharðs spannar hálfan fjórða áratug. Samhliða ritstörfum hefur hann fengist við myndlist við góðan orðstír. Á þessum tíma hafa ljóð hans og efnistök tekið töluverðum breytingum og má greina í þeim leitandi einstakling sem tekist hefur á við lífið af hispursleysi og grósku.

Til er sú heimspeki sem túlkar líf manns sem átök hans við að sætta hið appolóníska í tilverunni sem birtist í reglu, kyrrstæðri fegurð og skýrum mörkum, við hið díónýsíska sem birtist í ofsa, öfgum og upplausn þessara marka. Þá baráttu hefur Bjarni háð á afkastamiklum ferli á heljarslóð, í lífi sínu og ljóðum.

Í þessu ljóðaúrvali Bjarna Bernharðs birtist meginhluti ljóðanna í endurgerð. Bókin fæst í bókabúðum.

Engar athugasemdir »


Hvar er best að gefa út?

guttesen | 30. ágúst 2009 | Flokkað sem dægurþras

Hvar er best að gefa út ljóðabók sem er tilbúin og gæti komið út núna í haust þess vegna, eða eftir áramót?

Ætti maður að sleikja forlögin og bíða eftir að bjallan hringi út? Ætti maður að gefa út sjálfur? Eða ætti maður að gefa út hjá höfundaforlagi eins og Nykri eða Nýhil?

Hvað er best að gera í stöðunni? Hvernig er hagsmunum manns sem ljóðskáld best borgið?

1 athugasemd »


Ný ljóðabók eftir Bjarna Bernharð

guttesen | 2. júlí 2009 | Flokkað sem dægurþras

Ný ljóðabók eftir Bjarna Bernharð: Blóm í byssukjafta græðginnar
Blóm í byssukjafta græðginnar
Í hringrás
tómleika
flöktir ljósið
um verund

hverfull
sannleikur
spannar
sviðið

vegferð
í tímaleysi
markar
upphafið.

Í þessari bók má finna óræð myndljóð í knöppu formi, önnur opin og glaðleg, fáein hvassyrtari, en öll eru þau fáguð og bera jafnframt skýr einkenni höfundarins. Það vald sem Bjarni Bernharður hefur hér náð á markvissum, litríkum einfaldleika, skipar honum í röð merkari ljóðskálda samtímans.

Enginn skyldi reyna að útskýra galdur ljóðsins. En listin gerir okkur oft ljóst hið nýja og óvænta í því gamalkunna sem virtist útrætt og afgreitt – og að í hinu persónulega búa sammannleg verðmæti sem undirstrika hvað máli skiptir í lífinu – og hvers virði það er. Fátt er okkur mikilvægara.

Bókin fæst í bókaverslunum. Útgefandi er Ego útgáfan.

Engar athugasemdir »


Handbók perrans

guttesen | 3. maí 2009 | Flokkað sem dægurþras

Ég skrapp út á videoleigu í gærkvöldi til að leiga Gretti handa yngri syninum. Við afgreiðsluborðið dettur mér allt í einu í hug að spyrja um rómaða mynd slóvenska heimspekingsins Žižek, þar sem hann sálgreinir þekktar persónur úr kvikmyndasögunni, og segi við ungu dömuna: „Eigið þið A Pervert’s Guide To Cinema?“
     Stúlkan slær inn orðið ‘Pervert’ í tölvuna og segir því næst stutt í spuna: „Hún er allavega ekki til hér!“ – henni virðist ekki vera skemmt.
     Sem ég labba út með Gretti og bland í poka átta ég mig á því að hún hefur auðvitað haldið að ég væri að spyrja um klámmynd til að hafa með ásamt teiknimyndinni. Handbók perrans. Get ég gert að því að hún skuli ekki vera betur að sér í kvikmyndasögunni en þetta?

Engar athugasemdir »


Stjórnarmyndun

guttesen | 21. apríl 2009 | Flokkað sem dægurþras

kompass

 

 

 

 

 

 

 

       Spurt er: Hvaða flokkar þessarar samsvörunar eru líklegir til að mynda stjórn?

Engar athugasemdir »


Síðasta ljóðabók Sjóns

guttesen | 18. apríl 2009 | Flokkað sem dægurþras

37652_22

Þessi maður segir að ég hafi kallað bók hans, Síðustu ljóðabók Sjóns, auglýsingatrikk þegar ég sagði að umræða um hana væri það sennilega.

Bara svo það sé á hreinu.

Tilvitnunin birtist hér. En ég hef sumsé ekki lesið bókina og get því ekkert tjáð mig um hana.

8 athugasemdir »


Að vera leiksoppur

guttesen | 13. apríl 2009 | Flokkað sem dægurþras

bjrn_bjarnason___________jpg_280x800_q951Björn Bjarnason, þingmaður og fyrrum ráðherra,  segir Stjálfstæðisflokkinn leiksopp í ofurstyrkjamálinu svokallaða.

Veit Björn Bjarnason hvað það þýðir að vera leiksoppur?

Engar athugasemdir »


Um hallarbyltingu Nýhils

guttesen | 3. apríl 2009 | Flokkað sem dægurþras

img_09352Persóna úr skáldsögunni Konur hringdi í mig.

Hún þvoði mig tandurhreinan, virkilega hreinan.

Sittúasjónin er revúlúsjóner! sagði hún.

Engar athugasemdir »


Samskipti

guttesen | 9. mars 2009 | Flokkað sem dægurþras

Sjónvarpsstofa. Par að horfa á sjónvarpið.

Hann: Heldurðu að Ryan sé bældur hommi?

Hún: Ég veit það ekki.

Engar athugasemdir »


« Eldri færslur