DEUS kynnir: Ný ljóð frá Bjarna Bernharði
Vélgölturinn

– Ljóðin eru bikar helltur fullur af myrkri –

Bókaútgáfan Deus sendir frá sér sína áttundu afurð, Vélgöltinn eftir Bjarna Bernharð. Í þessari bók gerir skáldið upp við örlagaríka atburði fortíðarinnar. Bókin skiptist í stutta og ljóðræna texta og lengri prósa. Ljóðlist Bjarna Bernharðs hefur seinni árin einkennst af meiri ljóðrænni kyrrð og myndrænni fegurð en æskuverk hans báru með sér og er anægjulegt að fylgjast með þessum þroska á höfundarferli Bjarna.

Í sýruskipinu
sigli til ókunnra heima.
Þungur straumur
þykir villuhætt.

Furðum
bregður fyrir
á fölbleikum himni.

Að lokum
étur vélgölturinn
alla ferðina.

Vélgölturinn er tólfta ljóðabók Bjarna Bernharðs. Hann hefur fengist við skáldskap og málaralist í þrjá áratugi. Um fyrri bækur hans sögðu gagnrýnendur meðal annars:

„Bjarni þeytir sér á flug.“
           – Eiríkur Örn Norðdahl

„Ljóðheimur hans er menningarkimi, jaðarmenning.
Ljóðin eru bikar helltur fullur af myrkri.“
          – Skafti Þ. Halldórsson


ISBN: 9979-9534-7-0 / 9789979953470

Panta

Vélgölturinn

Kristian Guttesen



Birta upplýsingar …

Brekkan
Birta upplýsingar …

Litbrigðamygla

Birta upplýsingar …

Mótmæli með þátttöku
Birta upplýsingar …
„Að koma við sögu þar sem áður var ekki neitt.“
  Sögupersónan er rithöfundur sem er á mörkum ljóss og myrkurs og sér svipmyndir úr lífi sínu renna hjá eins og í kvikmynd.
   
„Að endingu er markmiðið að frelsa fjöldann.“
  Hann tekur þátt í andófinu og gerir tilraunir með eiturlyf, þau leysa úr læðingi ókunn öfl.
   
„Við finnum nýtt tungutak og erum afsprengi bítskáldanna.“
  Hann talar tungumál guðanna og gefur út torræðar, tvíeggja og háfleygar ljóðabækur.
   
„Ekki aðeins að kenna sig við kynslóð og samsvara sig kenningum hennar.“
  Eftir að hafa lent í bílslysi vaknar rithöfundurinn á spítala og heyrir raddir.
   
„Hvert á takmarkið að vera með því að yrkja?“
  Höfundur er þrítugur og hefur áður gefið út ljóðabækurnar Afturgöngur, Skuggaljóð, Annó og Ígull..

Ígull

Birta upplýsingar …

Efnisyfirlit
  ForsíðaBlogg  
  ForsíðaForsíða  
  RitaskráRitaskrá  
  LjóðLjóð  
1x1.gif GreinarGreinar 1x1.gif
  ViðtölViðtöl  
  LeikritLeikrit  
1x1.gif DeusDeus 1x1.gif
1x1.gif 86 kynslóðin86 kynslóðin 1x1.gif
  TenglarTenglar  
1x1.gif
Upplýsingar
 

© 2004 - Kristian Guttesen
Draugur

 
1x1.gif

   
 

Valid CSS!

 

Valid HTML 4.01 Transitional