Svart / hvíta konan
Seint í September árið 1950, þá nýbyrjuð
í háskóla, skrifaði Sylvía Plath eftirfarandi
dagbókarfærslu:
– Ég hef margt að gefa einhverjum, einhvern tíma.
En ég má ekki vera of trúuð. Ég mun enda með
einhverjum einum og áleiðis mun ég skilja marga eftir í
vegkantinum. Svoleiðis verður það. Kannski fer það
svo að einhvern tíma skilur einhver mig eftir í vegkantinum.
Og þá verður það póetískt réttlæti.
–
Mjög nær laginu sem mér flaug í hug. Og síðan
var „svart / hvíta konan“ horfin. Sylvía Plath stytti
sér aldur kaldan mánudagsmorgun í febrúar 1963.
Ljóð hennar lifa áfram og bera vitni um skapandi og skuggsæla
ævi.
Reykholt,
júlí 2004.
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 |