Svart / hvíta konan

Sylvía Plath hafði útskrifast með sæmd frá háskólanum og hafði unnið til heiðursstyrks til þess að nema við Cambridge háskólann í Englandi. Þar kynntist hún skáldinu Ted Hughes. Þau giftust 1956 og fjórum árum síðar, þá 28 ára gömul, gaf hún út ljóðabókina Colossus, í Englandi. Sú bók þykir aðeins sýna að hluta til þá snilligáfu sem í henni bjó. Bjuggu þau Hughes saman um hríð og áttu tvö börn þar til þau skildu.

Læðum er margt til lista lagt. Hún var innhverf og enginn vissi fyrir víst um hennar hagi. Sylvía var kona kuldans. Hvít nótt, svart á hvítu. Þegar hún dó, eða öllu heldur morguninn eftir – því enginn vissi nákvæmlega hvenær það var – ég fann hana stirðnaða á grasinu fyrir framan gangstéttina. Það var döggvotur morgunn og byggingamennirnir á höfðu rétt hafið störf. Þarna lá hún. Ég leit í kringum mig, var ekki alveg viss. En auðvitað var hún stirðnuð. Eins og sendiboði sem náði ekki alla leið heim. Það var harmþrungið þegar hún var grafin. Hálfan metra í jörðu. Mér var hugsað til lagstúfs, en ætla þó ekki að fara með hann nú. Ég ætla að geyma hann handa mér til áminningar.




Til baka     1     2     3     4     5     Áfram
Efnisyfirlit
  ForsíðaBlogg  
  ForsíðaForsíða  
  RitaskráRitaskrá  
  LjóðLjóð  
1x1.gif GreinarGreinar 1x1.gif
  ViðtölViðtöl  
  LeikritLeikrit  
1x1.gif DeusDeus 1x1.gif
1x1.gif 86 kynslóðin86 kynslóðin 1x1.gif
  TenglarTenglar  
1x1.gif
Upplýsingar
1x1.gif © 2004 - Kristian Guttesen 1x1.gif
1x1.gif
   
   
 

Valid CSS!

  Valid HTML 4.01 Transitional