Svart / hvíta konan

En hver var þessi „svart / hvíta kona“? Hún fæddist 1932 og birti fyrsta ljóð sitt á prenti átta ára gömul. Faðir hennar þjáðist af sykursýki en leitaði aldrei læknis þar sem hann var sannfærður um að hann væri með krabbamein. Þegar hann loks fékk úrskurðað um sjúkdóminn var of seint að grípa til læknisráða. Hann lést rúmri viku eftir áttunda afmælisdag Sylvíu. Hún óx úr grasi og varð viðkvæm, afburðargreind og með fullkomnunaráráttu í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Á yfirborðinu var hún fyrirmyndarnemandi, vinsæl í skóla, fékk hæstu einkunnir og vann til verðlauna. Hún varð ljóðskáld, birti ljóð af kappi á unglingsárunum og hlaut verðskuldað lof fyrir. Undir niðri herjaði þunglyndið og hún var útkeyrð vegna álags sem náminu og metnaðinum fylgdi. Í sumarfríi að fyrsta ári loknu í háskóla, gerði hún sína fyrstu tilraun til sjálfsvígs, þá tvítug. Frá þessu segir í sjálfsævisögulegri skáldsögunni Glerhjálminum. Hún gekkst undir raflostameðferð og sállækningu til þess að ná tökum á rót vandans. Önnur saga segir frá því að skuggi hins liðna var aldrei langt undan og Sylvía náði sér aldrei fyllilega eftir föðurmissinn.




Til baka     1     2     3     4     5     Áfram
Efnisyfirlit
  ForsíðaBlogg  
  ForsíðaForsíða  
  RitaskráRitaskrá  
  LjóðLjóð  
1x1.gif GreinarGreinar 1x1.gif
  ViðtölViðtöl  
  LeikritLeikrit  
1x1.gif DeusDeus 1x1.gif
1x1.gif 86 kynslóðin86 kynslóðin 1x1.gif
  TenglarTenglar  
1x1.gif
Upplýsingar
1x1.gif © 2004 - Kristian Guttesen 1x1.gif
1x1.gif
   
   
 

Valid CSS!

  Valid HTML 4.01 Transitional