Réttlætanlegt að ráðast að hverju sem er kvenkyns
Fyrir utan alnæmisvandann þá er stærsta þjóðfélagsvandamál
þessa lands hin næstum manneskjulausa misbeiting barna og kvenna.
„Samkvæmt því sem fram kemur í fjölmiðlum
virðist sem að réttlætanlegt þykir fyrir öfugugga
og aðra óheilbrigða einstaklinga að ráðast að
hverju sem er kvenkyns og / eða undir lögaldri." (Ellee Debartoli,
Big Issue Namibia, mars 2005, bls. 5) Á þeim fimmtán árum
frá því að þjóðin öðlaðist
sjálfstæði hafa orðið litlar framfarir á því
sviði.
Af þessum og fleiri ástæðum myndast félagsleg einangrun, og eftir að heimastjórnin tók við hefur hin áðurnefnda misskipting auðs ekki skolast burt heldur hefur fámennur hópur blökkumanna orðið staðfastur hluti af henni, og skipar hann nú hóp hinna efnuðustu einstaklinga landsins.
Eftir stendur fátækt land, ríkt land. Af fátækum
auði í ríku samfélagi. Við getum veitt þeim
eitthvað af því sem okkur var gefið.
Windhoek,
mars 2005.
| 1 | 2 | 3 |