Gimsteinn Afríku
Nýr forseti tekur við völdum þann tuttugasta og fyrsta
þessa mánaðar, en mikil óvissa ríkir um það
hvernig honum muni takast að leiða hina ólíku þjóðflokka
saman í sátt. Sagt er að innan þeldökku þjóðflokkanna
ríki ennþá meira kaldlyndi og ólund en á
meðal hvítra og svartra. Goggunarröðin skapaðist þegar
þrælahaldið var innleitt og lifir enn á meðal hinna
innfæddu.
Í riti frá ÞSSÍ segir: „Namibía, sem
stundum er kölluð „gimsteinn Afríku", er land stórbrotinnar
náttúru og fjölskrúðugs [mannlífs]. Þetta
er land andstæðna og þar má bæði finna víðáttumiklar
eyðimerkur og gróskumikla skóga.
Margbreytileikinn meðal mannfólksins er ekki minni. Í Namibíu
býr fólk af ólíkum menningaruppruna og ólíkum
efnahag.
Í þessu stóra og strjálbýla landi falla
tveir þriðju hlutar alls auðs í hendur 10% íbúa.
Þorrinn af landsmönnum, eða um 90%, má síðan
deila þeim þriðjungi sem eftir er." (Namibía,
Smárit ÞSSÍ, nr. 2, bls. 3)
| 1 | 2 | 3 |