Undan
rósrauðu myrkri
– Ljósboginn eftir Bjarna Bernharð
Við Bjarni áttum fyrst samleið fyrir meir en þrjátíu
árum, þá ungir menn samskipa á vetrarvertíð
en við entumst ekki lengi í plássinu; útgerðin
slæm, skipstjórinn vitleysingur. Ég sigldi svo mína
leið og Bjarni sína en á vissan hátt höfum við
ætíð verið samskipa og oft skárust leiðir
okkar í leit að því sem við héldum að
gæfi fánýtri tilveru einhvern tilgang. Við vissum
að ekki dygði annað en að leysa gáturnar sjálfir.
Það getur reynst dýrkeypt en líka treyst þann
grunn sem maður stendur á.
Bjarni gefur nú út tólftu bók af frumsömdum
skáldskap sínum. Hann hefur verið duglegur og uppskorið
aðdáun mína og annarra sem til þekkja og vita að
afrekin eru ætíð unnin í kyrrþey án þess
að eftir sé tekið.
Bárður R. Jónsson
RÓSRAUTT MYRKUR
Dagar senn
undan rósrauðu myrkri
í aldingarðinum.
Hann hefur gefið henni blóm
fyrir nætursakir
í tjaldbúðum ástarinnar.
ISBN: 9979-9534-4-6 / 9789979953449
Panta