Umfjöllun
Ljóðmælandinn dvelur á draugasetri þar
sem draumar og veruleiki verða eitt. Þar
sem dauðir ríkja og enginn tími líður.
Ljóðahrollvekjan
Litbrigðamygla er sjötta
bók Kristians Guttesen.
Númer þrjú á metsölulistum DV (vikuna 30.
nóv - 6. des) og Morgunblaðsins (vikuna 29. nóv - 5. des)
Myndir á kápu:
© 2005 Neptúnus Egilsson Gabriel Hirt
trúir þú á betri kodda spurði hann
já svaraði hún
og betri sæng og betra rúm
*
samasem tími afl og eða pláss (kannski
pása
viltu að ég útskýri þetta nánar fyrir
þér)
meira pláss þýðir meiri ást
*
nóttin er græn gróin og ógeðfelld
ég er ógeðslega graður
þú ert ógeðslega flott
ISBN: 9979-768-61-4 / 978997768616