ÍgullUmfjöllun

The poet and the peasant   2003
     
Fjári fín ljóðabók   2003
     
Hreindýr og níhílismi   2004



Hér lítur dagsins ljós þriðja frumorta bók Kristians Guttesen en hinar fyrri eru Afturgöngur árið 1995 og Skuggaljóð árið 1998. Frá síðustu ljóðabók hefur Kristian markvisst þróað skáldarödd sína og kveður hér við ferskan og óvæntan tón.

þegar sonur minn gróf gullfiskinn sinn
kom mér í huga dagurinn þegar við fundum
veikan broddgölt í holu við lestarbrúna
þar sem við lékum á vitundar foreldranna

við ýttum varlega við honum með priki
því svo virtist sem hann af veikum mætti
væri að reyna að fikra sig útúr holunni
kannski þó ekki nema til þess að deyja

þá sáum við þegar broddarnir bærðust
að það voru fullt af litlum hvítum ormum
sem hægt og sígandi voru að éta hann upp
enn var engin nálykt tekin að myndast

annars hlaut fiskurinn sómasamlega athöfn
og þann dag ríkti djúp sorg í gullrauðu hjarta


ISBN: 9979-9534-2-X / 978997953425

Kaupa

Ígull

Efnisyfirlit
  ForsíðaBlogg  
  ForsíðaForsíða  
  RitaskráRitaskrá  
  LjóðLjóð  
1x1.gif GreinarGreinar 1x1.gif
  ViðtölViðtöl  
  LeikritLeikrit  
1x1.gif DeusDeus 1x1.gif
1x1.gif 86 kynslóðin86 kynslóðin 1x1.gif
  TenglarTenglar  
1x1.gif
Upplýsingar
1x1.gif © 2004 - Kristian Guttesen 1x1.gif
1x1.gif
   
   
 

Valid CSS!

 

Valid HTML 4.01 Transitional