Listin er náttúrlega ævinlega samspil milli fólks
„Já,“ segir Margrét Lóa og hlær við.
„Kannski af einhverri uppgerðar hógværð, eins og
Dagur Sigurðarson talaði svo oft um. Eins og að vilja hreinlega
grafa hlutina í jörðu!“
„Listin er náttúrlega ævinlega samspil milli fólks,“
segir Gímaldin. „En við erum auðvitað
vanari því að vera neytendur. Eins og á ljóðakvöldum
til dæmis – þá er alltaf um ákveðið
samspil að ræða milli áheyrenda og þess sem flytur.“
„Já,“ samsinnir Margrét. Eins og munurinn á
því að lesa upp fyrir heilan sal af fólki eða
sitja aleinn inni í hljóðstúdíói.“
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |