Fyrirskipað að lækka (2)

Er það ekki það sem Geir Svansson nefnir í innganginum:
„Orð eru skrifuð til að hljóma ...“
„Auðvitað eru orð skrifuð til að hljóma,“ segir Margrét. „Þú færð allt öðruvísi nálgun þegar þú heyrir flutning höfundar á eigin verki.“
„Já, ég er sammála því,“ segir Gímaldin. „Það er allt annað en að lesa texta af blaði. En það að semja alla tónlistina einn fyrir svona verkefni er ekki ósvipað starfi ljóðskáldsins.“

Samstarf Margrétar Lóu og Gímaldins á sér tveggja ára aðdraganda en þau komu meðal annars fram á Bókamessunni í Gautaborg haustið 2001.
„ Við vorum þar í boði Norræna hússins og eftir fyrstu tónleikana var okkur skipað að lækka ef við vildum koma aftur fram,“ segir Margrét.
Gímaldin upplýsir að það hafi í raun verið skiljanlegt þar sem þau voru í Gautaborg aðeins tveimur dögum eftir fall turnanna í New York og þannig vildi til að það var sprengjuhótun á svæðinu. Hávaðinn í þeim hafi ef til vill virkað eins og ákveðin ógn og
skapað taugatitring.



Til baka     1     2     3     4     5     6     Áfram
Efnisyfirlit
  ForsíðaForsíða  
  BloggBlogg  
  RitaskráRitaskrá  
  LjóðLjóð  
1x1.gif GreinarGreinar 1x1.gif
  LeikritLeikrit  
1x1.gif DeusDeus 1x1.gif
1x1.gif 86 kynslóðin86 kynslóðin 1x1.gif
  TenglarTenglar  
1x1.gif
Upplýsingar
1x1.gif © 2004 - Kristian Guttesen 1x1.gif
1x1.gif
   
   
 

Valid CSS!

 

Valid HTML 4.01 Transitional