Fyrirskipað að lækka (1)
Hvernig er samstarfinu ykkar háttað? Er einfalt að sameina
tvö form eins og tónlist og ljóð?
„Það fer allt eftir því hvað maður á
til. Margrét Lóa átti sjálf upptökur af sínum
ljóðum, þannig að mér gafst tækifæri
til að máta ljóðin við tónlistina sem ég
átti til og við það sem ég átti í
smíðum,“ svarar Gímaldin.
Margrét Lóa bætir því við að notkun
Gímaldins á hinum ýmsu hljóðbrellum gefi ljóðunum
nýja vídd. Eða eins og Gímaldin orðar það
sjálfur, „Stundum verða orðin eins og hljóðfæri.“
Diskinum fylgir bók – Ljóðasafnið þitt,
Margrét. Hversu mikilvægt er hið prentaða orð?
„Það er í sjálfu sér plús
en þú þarft að upplifa heildina, tónlistin hefur
aukið vægi. Mér finnst Gímaldin fara sérstakar
leiðir við að draga fram stemningu, til dæmis með Vindhviðu
– diskótakti og krafti. Þannig upplifi ég að
tónlistin magnar upp textann
og textinn magnar upp tónlistina. Ég er mjög hrifin af
öllu sem er margbrotið, alveg eins og eitthvað sem er gegnsætt
eða hefur margar hliðar.“
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |