Stundum verða orðin eins og hljóðfæri
Um
síðustu jól kom út ljóðadiskurinn Hljómorð
eftir skáldkonuna Margréti Lóu Jónsdóttur
og tónlistarmanninn Gísla Magnússon, Gímaldin.
Þau hafa skapað sér nafn hvort á sínu sviðinu
en síðastliðin ár hafa þau komið annað
slagið fram saman og flutt orð við tóna. Útkoman
er verk sem hrífur hlustandann á vit tónskáldskapar
við krefjandi gítar og þungan trommutakt.
Á diskinum er að finna úrval ljóða Margrétar
við undirleik Gímaldins. Þessa dagana er hann á samt
hljómsveit sinni, 5tu herdeildinni, að leggja lokahöndina
á aðra plötu sveitarinnar, sem kemur í plötubúðir
innan skamms. Margrét Lóa hefur hins vegar gefið út
fjölmargar ljóðabækur en vinnur nú að ritun
skáldsögu.
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |