| Nágranni þessa heims | 2009 | |
| Geðlyf þyrftu að fylgja bókinni | 2007 | |
| Ýmsar umsagnir | 2006 | |
| Samúð og viðbjóður | 2006 | |
| Í sjúkum hugarheimi | 2006 |
Brekkan er ógnarsterk verðlaunasaga um ungan mann sem dvelur
á réttargeðdeild. Hann skrásetur brotakenndar minningar
sínar og smám saman verður úr heildarmynd af einstaklingi
sem dregur lesanda inn í frumstæðan og kæfandi heim geðveikinnar.
Brekkan er frumraun norska rithöfundarins Carl
Frode Tiller. Hún vakti mikla athygli og vann til fjölmargra verðlauna.
Leikgerð bókarinnar var sett upp í norska Þjóðleikhúsinu
árið 2004 og hlaut verkið fádæma vinsældir.
Bókin er eina frumraun nokkurs höfundar sem hefur verið tilnefnd
til Norsku bókmenntaverðlaunanna, Brageprisen.
„Gamli maðurinn hafði rétt fyrir sér þegar hann sagði að ég væri bara nágranni þessa heims. Stundum verður það óbærilegt. Skordýrin eru litlir kekkir undir húðinni á mér. Þau skríða og krafsa og glefsa í kroppinn á mér.“
ISBN: 9979-768-88-6 / 978-9979-768-3
Kaupa
Brekkan
Skoða vefverslun
Bókaútgáfan
Salka